Moggablogg: Fara eða vera ?

Þó að þúsundir manna (ok, tveir vefsíðustjórar) hafi komið að máli við undirritaða og grátbeðið (ok, boðið) að hafa vistaskipti, er óvissan enn ríkjandi í þeim málum.

Þetta með óvissuna er reyndar alfarið ofsagt, þar sem eðlislæg leti og ákvarðanafælni kemur til bjargar, stöðvar valkvíðan og gerir það að verkum að undirrituð nennir hreinlega ekki að færa sig um set -sem stendur.

Í annan stað, (eins og Jón Baldvin myndi orða það -ekki að spyrja að gömlum menntaskólakennurum), hef ég ekkert upp á Moggabloggið að klaga. Það er skilvirkt og þægilegt og þá örsjaldan að einhver vandamál koma upp, eru umsjónarmenn eldsnöggir að leysa úr þeim.

Er síðan, sem betur fer, ekki þvílíkur ástríðubloggari að mér sé ekki nokk sama hvoru megin hryggjar mín skrif liggja. Langar þó vissulega ekki að láta krukka í þau og hef ekki lent í slíku hingað til. Enda væri þá sjálfhætt.

Vissulega eru fingur Davíðs Oddsonar lengri en þeir virðast vera, svona við fyrstu sýn. Hvað sem annars má um þann mann segja, trúi ég því ekki fyrr en tek á að hann fari að slæmast með þá fingur í Moggabloggið. Slíkt væri frekar óskynsamlegt og væntanlega hefur nýr ritstjóri Mbl. annað á sinni könnu en að slátra enn einni mjólkurkúnni. Sjáum því hvað setur.

Verð þó að viðurkenna að í aðsóknarkenndu andrúmslofti "Nýja Íslands" er tilhugsunin um að verða kannski ein eftir í Mbl. bloggheiminum með Baldri Hermannssyni og Jóni Vali ekki alveg nógu aðlaðandi.

(Með allri virðingu fyrir þeim ágætu mönnum).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég ætla að vera kyrr þannig að það eru þá við tvær og þeir tveir hehehe

Ragnheiður , 3.10.2009 kl. 17:09

2 Smámynd:  Dagný

Ég verð líka áfram hér - nenni ekki að flytja.

Dagný , 3.10.2009 kl. 17:14

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Moggabloggið er frábærlega uppsett, auðvelt að fylgjast með bloggurum ...en það kann að breytast ef skuggi bláu handarinnar fer að teygja sig yfir sviðið. Þannig að ég hinkra. Eyjubloggið finnst mér eitthvað fráhrindandi eitthvað svo staðlað og settlegt þó góðir pennar séu þar.

Finnur Bárðarson, 3.10.2009 kl. 17:15

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Eyjubloggið er á áberandi niðurleið. Pressan mun skárri.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 3.10.2009 kl. 17:19

5 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Sammála Finni..Moggabloggið ber af í uppsetningu.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 3.10.2009 kl. 17:29

6 Smámynd: Landfari

Voðalega halda sumir að þeir séu merkilegir. Hverjum er ekki sama hvar þið bloggið? Nú eða hvort þið bloggið yfir höfuð.

Landfari, 3.10.2009 kl. 17:47

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Hvað sagði Einar Ben. aftur um að finna til í straumi sinna tíma ?

Hvers vegna bloggar þú, nafnlausi "Landfari" ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 3.10.2009 kl. 17:52

8 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Vera!

Haraldur Rafn Ingvason, 3.10.2009 kl. 18:13

9 Smámynd: Finnur Bárðarson

Jæja gleðipinninn Landfari sjálfur mættur. Svo tek ég undir með Haraldi.

Finnur Bárðarson, 3.10.2009 kl. 18:30

10 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Þegar hann var í pólitík skrifaði Svavar Gestsson í Morgunblaðið ef hann þurfti að láta taka mark á sér. Lét ógert sem sagt að fá þær greinar birtar í Þjóðviljanum. Ætli það verði ekki svipað með burtflognu bloggarana?Ná þeir ekki eyrum miklu fleiri hér? Taktu ekki áhættuna á slíku, Hildur Helga. Vertu um kyrrt!

Ágúst Ásgeirsson, 3.10.2009 kl. 19:19

11 Smámynd: Landfari

Ég blogga nú ekki mikið Hildur og held ekki að mitt blogg sé neitt merkilegra en þitt eða hvers annars. ( Jú auðvitað er mitt blogg miklu gáfulegar en annara )

Ég kíki stundum á það sem fólk hefur að segja um þær fréttir sem bitast á mbl.is og á það til að skrifa þar í athugasemdadálkinn. Breytir þar engu hvort viðkomandi höfundur er á einhverjum topp 10 lista eða ekki enda veit ég ekki hvar maður nálgast þann lista.  Ég veit hinsvegar hvernig maður kemst á þann lista en til þess þarf maður að geta eytt talsvert meiri tíma við tölvuna en ég hef til þess. Maður þarf hinsvegar ekki að hafa neitt merkilegt eða gáfulegt að segja.

Mér er eins farið og Jóni Hrak sem ort var um: 

"Hugði ei sannleik hóti betri
hafðan eftir Sankti-Pétri
heldur en ef svo hending tækist,
húsgangurinn á hann rækist. "

Maður er búinn að sjá hér nokkra bloggara hverfa héðan með dramatískum yfirlýsingum en poppa svo aftur upp hérna. Sennilega af því að þeir fá ekki sömu athygli annars staðar og hér því það eru svo margir sem kíkja á  blogg um fréttir fréttarinnar vegna en ekki vegna bloggarans.

Nafnlaus er ég hinsvegar ekki frekar en þú þó þú hafir myndina framyfir mig. Það er nú bara af því þú myndast svo miklu betur en ég. Mér er alveg fyrirmunað að skilja af hverju þessar fínu myndavélar sem til eru í dag geta ekki skilað betri mynd af mér en raun ber vitni. Á meðan verður blái kallinn að duga.

Landfari, 3.10.2009 kl. 19:53

12 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Hildur Helga, vona að eftir þessa skyndikönnun á "baklandinu" takist þér að negla ákvörðun.  Persónulega finnst mér að þú ættir að vera.  Sárt að missa fleiri beitta penna,  sem gerir umræðuna litlausari og bláleitari.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 3.10.2009 kl. 20:14

13 identicon

Einu bloggin sem ég les eru á mbl.is og ætla ég ekki að breyta því og nenni ekki að leita af brottfluttum dramadrottningum. Það er gaman að lesa þig Hildur Helga og vona ég að þú bloggir sem lengst og mest.

Eruði annars búin að sjá leiðaran hans Davíðs í sunnudagsmogganum? Alveg óborganlegur. Hárnákvæm lýsing á dramadrottningum bloggsins.

Helga (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 20:51

14 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

elítublogg Eyjunnar er vitanlega bara fyrir útvalda. enginn fer þangað nema hafa VIP miða. bloggið á Vísi er fremur klént. þekki ekki Pressubloggið. þarf að kynna mér það.

Moggabloggið er aðgengilegt. þá meina ég að lesendur Moggans og jafnvel þeir sem fara bara beint á blog.is eiga auðvelt með að sjá blogg sem skrifuð eru.

alltaf spurning um tímapunktinn, þegar maður gerir breytingar. alltént víst að þegar ég verð einn með ésúblætisbloggurunum færi ég mig annað eða hætti að blogga.

Brjánn Guðjónsson, 3.10.2009 kl. 21:52

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Árni Matt sér um bloggið og sinnir því af alúð eins og öðru sem hann tekur sér fyrir hendur. Ég tek undir hvatningu ofanritaðra.

Sigurður Þórðarson, 3.10.2009 kl. 22:24

16 Smámynd: Theódór Norðkvist

Mér sýnist að Íslendingar almennt séu með einhverja innbyggða sjálfstortímingarhvöt eða sjálfshatur. Þeir leitast alltaf við að kyssa á vönd kvalara sinna, líkt og lamin eiginkona er meðvirk með ofbeldisfulla eiginmanninum sínum.

Það fara fáir af Moggablogginu vegna þess að þú lesandi góður lest moggabloggið eða bloggar þar. Ef bloggarar hefðu vit á að færa sig eftir að hafa verið svívirtir myndi blog.is missa áhrif sín.

Nei, þið viljið frekar styðja og fjármagna með skrifum ykkar og lestri fjölmiðlafyrirtæki sem hrækti í andlit þjóðarinnar með því að ráða yfirhönnuð hrunsins sem yfirmann umfjöllunar stærsta (ríkis)fjölmiðilsins um hrunið. Auk þess sem þessir eigendur fengu 5 milljarða meðgjöf frá ríkinu til að fá að stýra umfjöllun um sjálfa sig. Munið að kvótakerfið var upphafið að hruninu, en kvótagreifar eiga og stýra Morgunblaðinu.

Ég er farinn að hallast að því að Íslendingar eigi skilið þessar hörmungar sem dynja yfir. Éta úr lófanum á Davíð Oddssyni, versla í búðum Jóns Ásgeirs, allt nema hætta að kyssa vöndinn. Viðhalda veldi hrunmeistaranna. Minnir óneitanlega á alkann, sem heldur því fastar um flöskuna sem hann nálgast ræsið meira.

PS Ég set þessa athugasemd sem moggabloggari, því innskráningarkerfi síðuhaldara býður ekki upp á annað, þar sem ég þarf annars að fara inn í póstinn minn og staðfesta athugasemdina. Ég viðurkenni að ég fæ minni lestur á nýja blogginu, en ég ætla samt að nota það áfram.

Theódór Norðkvist, 3.10.2009 kl. 22:32

17 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Ekkert vera að færa þig Hildur Helga, fínt að hafa þig hérna. Hef enga trú á því að menn fari að hrófla eitthvað við moggablogginu.

Gísli Foster Hjartarson, 3.10.2009 kl. 22:46

18 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekkert ofsóknaræði! Davíð er eitursnjall penni og honum leiðist áreiðanlega ekkert þó einhverjir reyni að berja á honum. Hann kann að svara fyrir sig.

Árni Gunnarsson, 3.10.2009 kl. 23:00

19 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Það sem bjargar þér Hildur mín Helga er að þú ert ekki forfallin fréttabloggari og getur að mestu leiti ráðið hvað þú bloggar um. Fyrir hina sem eingöngu blogga um fréttir verður það erfiðara að verða ekki fyrir áhrifum af nýrri ritstýringarstefnu moggans og mbl.is.  

Gaman t.d. að fylgjast með frettablogginu núna. Einhver stelpa sagði "prumpa" og nú eru allir að "prumpa" einhverju um allt blogg og eins og litlir krakkar sem flissa bara af því að segja orðið, geta þeir ekki stillt sig við að endurtaka það aftur og aftur.

Svanur Gísli Þorkelsson, 3.10.2009 kl. 23:50

20 identicon

Bloggið er eitt það besta við tjáningarfrelsið í fjölmiðlum í dag, en sorglegt hvað það er mikið misnotað af veruleikafirrtum, nafnlausum einstaklingum. Kemur hreinlega óorði á þennan tjáningarmáta, og fælir marga frá því sem vilja leggja orð í belg á yfirveguðum nótum.

Annars sé ég ekki hvaða máli það skiptir hver sé ritstjóri Moggans, svo fremi hann sé fróður, menntaður, góður penni, og hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á mörgum sviðum.  Mig grunar reyndar að viðbrögðin hefðu orðið svipuð ef einhver annar fyrrverandi pólitíkus hefði sest í ritstjórastólinn, því fyrrum stjórnmálamenn eru ávallt dæmdir af fortíð sinni, og þá sérstaklega ef þeir hafa verið eins lengi í ríkisstjórn og Davíð Oddson !

Brynja Daníelsdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 23:52

21 identicon

Er ekki bara fínt að halda áfram hér? Eina bloggið sem kemst eitthvað nálægt þessu - en samt ekki - er bloggið á Eyjunni. En --þaðð eru nú ekki allir sem komast inna á Eyjuna í elítubloggið það en svo er spuringin hvort  nokkurð vilji vera það í einhverju hálfgerðu útrásarbloggi"

Soffía (IP-tala skráð) 4.10.2009 kl. 00:37

22 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Sendi kveðjur með stuðlaginu góða með Clash, með tilvísun í titilinn,  hvet alla til að hrista kroppinn og hausinn í takt.

Should I stay or should I go?

http://www.youtube.com/watch?v=jPmFZlsV8Iw

Jenný Stefanía Jensdóttir, 4.10.2009 kl. 00:41

23 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Ég var hér á undan Davíð, og hann fælir mig ekkert í burtu.

Jóhanna Magnúsdóttir, 4.10.2009 kl. 01:18

24 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Hildur Helga, hef ekki heldur trú á,að ritstjóri fari að slæmast  með sína fingur í Moggabloggið.  Þín skrif eru áhrifarík,umfram allt skemmtileg.

Helga Kristjánsdóttir, 4.10.2009 kl. 02:21

25 Smámynd: Eygló

JóhMag var á undan mér... ég var komin fyrst...

Af hverju ættum við annars að flytja okkur?

Eygló, 4.10.2009 kl. 02:33

26 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ég átta mig ekki á hvert vandamálið er. Þeir sem hata Davíð geta náttúrulega ekki bloggað hér sóma síns vegna en hinir láta sér í léttu rúmi liggja hverjir ritstýra Mogganum.  En ef eigendastefna Árvakurs, er líka að ritstýra Blog.is, þá er sjálfhætt fyrir alla sem ekki samsama sig þeirra hugmyndafræði.

Gott blog þarf að uppfylla tvennt, 1. Vera áhugavert  2. hafa opið fyrir athugasemdir.  Ekki flóknara en það. Það skiptir engu hver hýsir síðuna ef hitt er í lagi 

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.10.2009 kl. 04:36

27 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Gísli Svanur talar um "forfallna" fréttabloggara. Kannski er eðlilegt að forsíðubloggari skilji ekki muninn á því að vera í þessum forréttindahópi og aðstöðu okkar aumingjanna. Ef venjulegur bloggari skrifar ófréttatengdan pistil á venjulegum tíma sólarhringsins er hann hugsanlega sýnilegur lesendum í nokkrar mínútur. Síðan hverfur hann út í eterinn.Forsíðubloggarinn fær sinn pistil sýndan annað slagið allan daginn og jafnvel í 2 til 3 daga. Efnið jafnvel orðið úrelt. Hér eru reyndar margir góðir forsíðubloggarar og margir þeirra leyfa óritskoðuð komment. Aðrir ritskoða vandlega og birta ekki athugasemdir annara nema að þær falli  að málflutningi þeirra. Ekki veit ég hvernig stjórnendur bloggsins velja forsíðubloggara og mér kemur það svo sem ekkert við. Hinsvegar finnst mér afleitt að valið lið últra hægrimanna er í þessum hópi og leyfir engar athugasemdir. Nefni sem dæmi Gísla Frey Valdórsson, Hjört Guðmundsson og Hannes Hólmstein. Mér finnst felast í blogginu að allir megi gera athugasemdir eða a.m.k. þeir sem ekki fela sig bakvið dulnefni.En mér finnst arfavitlaust ef fólk flytur sig héðan á þeim forsendum einum að Davíð Oddsson er orðinn ritsjóri Moggans. Það er að minnsta kosti út í hött á meðan bloggið fær að vera í friði. Ég sendi öllum bloggurum Moggabloggsins bestu kveðjur.

Sigurður Sveinsson, 4.10.2009 kl. 08:59

28 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kaldhæðni þín gefur lífinu lit. Ekki fara.

Ragnhildur Kolka, 4.10.2009 kl. 09:14

29 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sama hvar þú ert ég held áfram að lesa einn af mínum uppáhalds bloggurum.

Set link inn á bloggið þitt á minni síðu.

Moggabloggið er gott.  Umhverfið frábært og Árni Matt og hinir strákarnir yndislegir.

Í mínu tilfelli snýst málið bara ekki um það.

Allar ákvarðanir í þessu máli eru fínar.  Hver gerir eins og hentar honum best.

Knús á þig töffarinn þinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.10.2009 kl. 09:28

30 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Meðan hin kalda bláa hönd kvótagreifanna lætur mig í friði verð ég hérna!

Ingimundur Bergmann, 4.10.2009 kl. 09:56

31 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta Davíðsuppþot líður hjá. Allt liður hjá eins og búddistar segja. Ekki dettur mér í hug að flytja mig. Ég get ekki verið með sams konar veðurblogg með fylgiskrám annars staðar en á Moggablogginu. Ég blogga út af verðurblogginu, allt annað er bara lítilmótleg aukageta. Mér var einu sinni boðið að koma á Eyjuna en fór ekki út af veðurblogginu. Og ekki get ég séð að þar sé nein elíta á ferð, a.m.k. hvað vitsmuni og pennafærni snertir. En hvar sem þú flækist þá er bloggið þitt eiginlega hið eina sem kemur mér í gott skap. Ég les sáralítið af bloggi. Blogg er í eðli sínu mannskemmandi. Menn eiga að lesa göfuga texta og guðsorð!

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.10.2009 kl. 09:57

32 identicon

Sammála Sigurði hér á undan. Þessi múgæsingur líður hjá. Allavega hefur Mogginn lifað af tímanna tvenna í áskrifendasveiflum, því annað slagið hafa orðið uppsagnarhrina hjá þeim, en alltaf kemur fólk aftur eftir einhvern tíma.

Það er bara svo skondið að hugsa til þess að áskrifendur gera sér aldrei grein fyrir að ástæður uppsagna þeirra er alltaf skráð þegar þeir hætta, og þess vegna verða þeir alltaf hvumsa þegar þeir vilja byrja aftur og segjast þá ekkert kannast við að hafa sagt upp  vegna  einhverra  ómerkilegra  ástæðna 

Ég get skilið að fólk segi upp áskrift vegna efnahagsástandsins, en það er eins og þetta fólk haldi að heimurinn farist, bara vegna þess að einn fyrrum stjórnmálamaður er tekinn við ritstjóraembættinu. Talandi um geggjun

Brynja Daníelsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2009 kl. 11:39

33 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég hef sveiflast fram og til baka hvað varðar að blogga hér áfram.

Ég skil vel prinsippmennsku þeirra sem ákveða að hætta á mbl.is.

En það má líka líta á málið út frá þeirri hlið, að með því að félagshyggjufólk hladi áfram að blogga hér, er verið að skapa smá mótvægi við bullshittið.

Moggabloggið er óumdeilanlega mest lesna bloggið.

Ég tók á endanum þá ákvörðun um að halda áfram hér þar til mér verður hent út, eða bloggi lokað, en þá verða það auðvitað klár skilaboð til fólks um stefnu Davíðs og blaðsins, og varla til álitsaukningar á málgagni "frelsisins" eins og harðlínuHannesar kjósa að kalla það.

hilmar jónsson, 4.10.2009 kl. 14:54

34 identicon

Hvers vegna að láta einn eða fleiri "moggamenn" hafa þessi áhrif á sig ?  Væri ekki nær að "berjast" áfram á þessum vettvangi og koma sínum skoðunum á framfæri ?  Þessir blessaðir moggamenn eru ekkert meira eða minna merkilegir en gerist og gengur með annað fólk í þjóðfélaginu, þrátt fyrir titla og fyrri og núverandi störf, þeir hafa þó sumir hverjir sennilega haft meiri "áhrif í þjóðfélaginu" en margir bloggarar hér geta sætt sig við og státað af sjálfir.  Það er mun gáfulegra að staldra hér aðeins við og sjá hvernig málin þróast í stað þess að fara strax í fýlu og segja "bless moggablogg".  Ef sú hugsun kæmi upp í mínum kolli að hætta "athugasemdum" á þessum vettvangi vegna ritstjórnar og/eða eigenda blaðsins fær ég á námskeið í "sjálfstjórn"  ;-) 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 4.10.2009 kl. 16:19

35 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ekki var nú verið að "fiska eftir komplimentum" í hugsað-upphátt færslunni hér að ofan. Þakka samt góðar kveðjur.

Sakna margra, sem nú eru að hverfa héðan af Mbl.is, en heimsæki þá -og þær- bara í nýjum heimkynnum.

Tel ekki að of mikið eigi að lesa í "stéttskiptinu bloggsins" almennt.

Ég t.d. VEL að vera hér áfram um stund og vísa í fyrri ástæður.

Læt mér í léttu rúmi liggja þó að ég húrri upp og niður einhvern vinsældalista, enda sú oftast raunin.

Fyrir mér er bloggið oftast nett afþreying, svona alter ego, sem ég leik mér með á lausum stundum, stundum um heimsmálin, stundum um hunda- og kattalífið í götunni minni og flest þar á milli. Það er einmitt það skemmtilega við bloggið, að við það er hægt að setja sig í þær stellingar sem hugurinn býður hverju sinni. (Svona innan almennra velsæmismarka).

Þjóðfélagslega þýðingu netheima skyldi hins vegar ekki vanmeta -allra síst hjá netvæddustu þjóð í heimi, síðastliðið ár !

Síðan vona ég innilega að úrval frétta sem Mbl.is býður upp á til bloggs fari ekki að verða fátæklegra. Hefur nefnilega oft þótt vanta meiri fjölbreytni þar.

Þó að prívat og persónulega reiði ég mig langt frá því alfarið á fréttavefi, vil ég samt hafa aukið úrval í þeirri flóru. Það úrval hefur mátt vera meira og má alls ekki við því að minnka.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 4.10.2009 kl. 16:57

36 Smámynd: Haukur Nikulásson

Stéttaskiptingin hér hefur aldrei farið á milli mála. Sem gagnrýnið fyrirverandi íhald var Mogganum sérstaklega í nöp við mig. 1200 pistlar nokkurn veginn daglega dugði ekki til að vera meðal elítunnar hérna. Það má nefnilega ekki gagnrýna íhaldið of mikið. Það sem eftir situr hér eru íhaldsbloggarar sem ekki leyfa athugasemdir.

Það er kostulegt að sjá Hannes Hólmstein meðal "vinsælustu" bloggaranna á hérna. Sama má segja um Björn Bjarna. Með lokað athugasemdakerfi hafa þeir ekkert hérna að gera af því að þeir eru ekki gagnvirkir.

Ég er kominná www.eyjan.is og kann strax vel við mig þar. Þar er ég ekki lengur neyddur til að blogga utan í fréttir til að fá einhvern lestur. Áður var maður neyddur til að tengja sig fréttum til að fá einhvern lestur því annars varstu bara ósýnilegur. Alls kyns illa skrifand íhaldspakk með lokað athugasemdakerfi var umsvifalaust sett í forsíðubloggið og það var beinlínis móðgandi.

Samt verður maður að skilja að Mogginn er alls ekki hlutlaus og því skiljanlegt. Ljóti leikurinn var samt sá að þykjast vera óháður miðill. Nú er sá feluleikur alveg úti. Davíð er kominn á svæðið!

Haukur Nikulásson, 4.10.2009 kl. 20:17

37 Smámynd: hilmar  jónsson

Við sjáum td hverjum mbl flaggar efst á bloggsíðunni.

Ekki mikið af félagshyggjufólki þar, eða hvað ?

hilmar jónsson, 4.10.2009 kl. 20:22

38 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þú átt að sjálfsögðu að VERA Hildur! Svo ertu blaðakona og þeir eru alltaf alveg hlutlausir... flestir allavega..hehe...annars er ekki til nein stéttaskipting neinstaðar nema sú sem sem er búin til og framleidd af "venjulegu" fólki, hvað sem það nú þýðir... já, og af ritstjórum á bloggi. Þetta er svona allsstaðar í heiminum og ég myndi ekki vilja hafa þetta öðruvísi. HH er kjáni og það vita allir nema alvarlega meðvitundarlausir. Og það er nóg til af þeim..

Óskar Arnórsson, 5.10.2009 kl. 06:19

39 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Vera................og sjá hvað gerist.  Ég hugsa að ég eflist bara á ný ef eitthvað er

Hólmdís Hjartardóttir, 5.10.2009 kl. 15:57

40 Smámynd: Páll Blöndal

Ég skil ekki þessa hræðslu við Davíð Oddson.
Umræðan hér verður bara skemmtilegri og líflegri með hann sem ritstjóra.

Ef ástæða er til að vera fúll út í einhvern, þá er það ritstýring bloggsins sjálfs.

Bloggumsjónamenn líta á sig sem 
RITSTJÓRA og eru illa litaðir og hlutdrægir. 

Blogg-Ajatollarnir voru hér á undan Davíð.

Páll Blöndal, 5.10.2009 kl. 16:58

41 Smámynd: hilmar  jónsson

Hver heldur þú að ritstýri ritstjórum bloggsins Páll ?

hilmar jónsson, 5.10.2009 kl. 21:11

42 Smámynd: Páll Blöndal

Hingað til hafa ritstjórar moggabloggs hafa haft miklar mætur á alls kyns trúaröfgavitleysingum. Þeir njóta 100% verndar og enginn má segja neitt sem þetta lið kallar að "guðlast".  Álfa og spákonukukl er verndað sömuleiðis.
Þú sást nú hvernig fór fyrir DoctorE.

Virkir ESB-sinnar áttu ekki upp á pallborðið hjá bloggritstjórninni,
þó svo að þáverandi ritstjóri hafi verið ESB-sinni.

Páll Blöndal, 6.10.2009 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og þrettán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband