15.12.2008
Madonna eflaust alveg í rusli
Eldgamall erkibiskup, sem kóaði látlaust með einhverjum siðspilltasta einræðisherra Suður Ameríku -og syngur nú yfir honum sálumessur- álítur Madonnu vera "móðgun gegn drottni".
Sú hlýtur að taka þetta nærri sér. Sennilega pakkar daman bara saman og heldur heim frá Chile, enda viðkvæmt lítið blóm.
Ef guð heldur lista yfir þá sem "móðga" hann, hlýtur morðhundurinn og valdaræninginn Pinochet að vera þar nokkuð ofar á blaði en Madonna.
|
Madonna sökuð um að móðga guð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Nýjustu færslur
- 10.3.2010 Stephen Fry og páfadómur Hitlers
- 9.3.2010 Pabbi minn um krummann sinn
- 9.3.2010 Nær lífi áður en tekinn af lífi ?
- 7.3.2010 Að gefnu tilefni
- 6.3.2010 Í dag kemur (næstum) allt til greina...
- 4.3.2010 Borgaraleg óhlýðni sem bragð er að
- 2.3.2010 Hversu veruleikafirrt getur ein þjóð orðið ?
- 2.3.2010 Óttalegt skítapakk er þetta
- 28.2.2010 Af drykkjuskap rússneskra sirkusapa, kanarífugla í Garðabænum...
- 27.2.2010 Hvers vegna í ósköpunum ?
- 25.2.2010 Snjáldurraunir þungar -hent út af landnámsgeit
- 22.2.2010 "Mér kann að hafa misheyrst"
- 21.2.2010 Gamlar syndir gleymast ei
- 19.2.2010 Aðkeypt einlægni ?
- 19.2.2010 Frábær landkynning !
Bloggvinir
-
123
-
49beaverbrook
-
aevark
-
agny
-
agustolafur
-
agustvalves
-
ahi
-
ak72
-
aloevera
-
amal
-
amman
-
andres
-
annaandulka
-
annadis
-
annakr
-
anno
-
apalsson
-
arh
-
arijosepsson
-
arnaringvarsson
-
arnim
-
arnorbld
-
arnthorhelgason
-
askja
-
aslaugas
-
aslaugosk
-
astafeb
-
asthildursk
-
astroblog
-
athena
-
audunnh
-
austurlandaegill
-
axelaxelsson
-
baldurkr
-
begga
-
birgitta
-
birnan
-
bjarnihardar
-
bjarnimax
-
bjornf
-
blossom
-
bofs
-
brahim
-
brandarar
-
brjann
-
danjensen
-
diva73
-
dj-storhofdi
-
dofri
-
don
-
dramb
-
draumur
-
drifakristjans
-
duddi9
-
eask
-
eddabjork
-
eggmann
-
eignarfall
-
einarborgari
-
einarhardarson
-
einari
-
einarorneinars
-
einarvill
-
einherji
-
ellahelga
-
esgesg
-
eythora
-
fhg
-
fia
-
fingurbjorg
-
finni
-
finnur
-
formosus
-
forvitin
-
fridaeyland
-
frisk
-
fsfi
-
gattin
-
gelin
-
gerdurpalma112
-
gislihjalmar
-
gorgeir
-
gretarmar
-
gudjul
-
gudmundurfranklinjonsson
-
gudmundurmagnusson
-
gudni-is
-
gudnyanna
-
gudr
-
gudrunkatrin
-
gudruntora
-
gullilitli
-
gullvagninn
-
gurrihar
-
gustaf
-
gustichef
-
haddih
-
hafstein
-
hallibjarna
-
hallormur
-
hallurmagg
-
harpam
-
harring
-
haugur
-
heidistrand
-
heilsa
-
helgafell
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
himmalingur
-
holmdish
-
holmfridurge
-
hross
-
hugdettan
-
hugsadu
-
huxa
-
iceberg
-
ikjarval
-
imbalu
-
ingama
-
ingibjorgelsa
-
ingimundur
-
jaherna
-
jakobjonsson
-
jakobsmagg
-
jari
-
jaxlinn
-
jenfo
-
jennystefania
-
joimotor
-
joiragnars
-
jonaa
-
jonarnarson
-
jonbjarnason
-
jonhalldor
-
joninaottesen
-
joningic
-
jonsullenberger
-
kaffi
-
kallimatt
-
kamasutra
-
keli
-
kermit
-
kerubi
-
kga
-
kht
-
kikka
-
kokkurinn
-
kola
-
kolbrunb
-
kolgrima
-
konukind
-
kreppan
-
kreppukallinn
-
kristjanb
-
kruttina
-
ktomm
-
larahanna
-
launafolk
-
lehamzdr
-
lks
-
loopman
-
lotta
-
lucas
-
lydurarnason
-
madddy
-
maggadora
-
maggaedda
-
margretlu
-
margretrosa
-
margretsverris
-
mariakr
-
marinogn
-
martasmarta
-
meistarinn
-
milla
-
mrsblues
-
nilli
-
nimbus
-
obama
-
odinnsr
-
olafur-thor
-
olii
-
olijon
-
olinathorv
-
olof
-
olofdebont
-
omarbjarki
-
omarragnarsson
-
pallblondal
-
palmig
-
patent
-
paul
-
pjeturstefans
-
prakkarinn
-
rafng
-
ragnar73
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
raksig
-
rannveigh
-
ransu
-
rassgat
-
regin
-
roggur
-
rosa
-
runirokk
-
saemi7
-
salkaforlag
-
salvor
-
sapuopera
-
siggi-hrellir
-
siggisig
-
sigrunzanz
-
sigurdurkari
-
sigurjonben
-
sigurjonth
-
sissupals
-
sivvaeysteinsa
-
sjampoo
-
sjos
-
skordalsbrynja
-
slartibartfast
-
sleepless
-
snjaldurmus
-
snjolfur
-
solir
-
stebbifr
-
steinig
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
stormsker
-
sunnad
-
susannasvava
-
svalaj
-
svanurg
-
svartur
-
taoistinn
-
tara
-
teflon
-
thee
-
thoragud
-
thorarinneyfjord
-
thorbjorghelga
-
thorgud
-
thorhallurheimisson
-
thorolfursfinnsson
-
thorsaari
-
tik
-
tofraljos
-
tolliagustar
-
toro
-
tryggvigunnarhansen
-
tryggvim
-
umbiroy
-
unnurgkr
-
urek
-
ursula
-
valli57
-
varmarsamtokin
-
vefritid
-
verjumbyr
-
vest1
-
vglilja
-
vibba
-
viktorblondal
-
viska
-
vistarband
-
xstrax
-
ziggi
-
zunzilla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.3.): 19
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 2473
- Frá upphafi: 364431
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 1722
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
Kaþólikkarnir eru alveg sér á báti
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.12.2008 kl. 02:28
Vissulega -og viðhorf þeirra til syndarinnar eru oft og tíðum nokkuð sérkennileg, eins og þetta dæmi sannar.
Held samt að Madonna hljóti að vera miklu "betri" kaþólikki en Medina kardínáli.
a.m.k. vildi ég frekar sækja sálumessur með henni...
Hildur Helga Sigurðardóttir, 15.12.2008 kl. 02:33
Þó að taka megi undir lokaorð þín í pistlinum, Hildur Helga, þá réttlætir það ekki, hvernig þessi tónlistarkona hefur notað líkama sinn ótæpilega sem agn til að selja framleiðslu sína; og upptaka heitisins 'Madonna', sem stolið var frá sjálfri Maríu mey, var móðgun við kristið fólk, kaþólsk sem annað. Ýmsar yfirlýsingar hennar lýsa ennfremur skorti á kaþólskri trú miklu fremur en hitt, þannig að það eru nú fleiri hliðar á þessu máli en þér var sýnt um að nefna í þessum stutta pistli þínum.
Jón Valur Jensson, 15.12.2008 kl. 03:10
Nei JVJ, þetta er ekki stolið frá Maríu mey. Þetta er einfaldlega ítalska, samandregið "ma donna" sem þýðir "mín frú" eða uppá ensku "my lady". Það þarf ekki allt að tengjast trúarbrögðum, Madonna er eins og flestir vita af ítölskum ættum!
Páll Geir Bjarnason, 15.12.2008 kl. 06:14
mikið ertu viðkvæmt blóm JVJ. segi það nú með þér HH að ég vildi heldur hlusta á Madonnu. Boobs and all. Samt er ég ekki hinsegin.
Rut Sumarliðadóttir, 15.12.2008 kl. 07:31
Merkilegt hvað ég er sammála ykkur flestum. Erkibiskup sem heiðrar siðspilltan fjöldamorðingja er auðvitað móðgun við bæði Guð og kristna trú og ég er sammála Jóni Val að Maddonna beitir öllum brögðum, burt séð frá velsæmis sjónarmiðum, til að selja sem mest af sinni innihaldslausu framleiðslu (Mér finnst tónlist ekki nógu nákvæmt orð yfir það sem hún sendir frá sér).
Húnbogi Valsson, 15.12.2008 kl. 07:44
Ég held ég sleppi að vera í áheyrandahóp beggja. Er guð sjálfur búinn að segjast vera móðgaður?
Hólmdís Hjartardóttir, 15.12.2008 kl. 08:27
Góður Húnbogi !
Hólmdís, móðgun (insult) getur átt sér stað við fleiri en menn, t.d. þjóðfánann eða stofnun eins og Alþingi, án þess að sá eða það, sem móðgað er, "móðgist". Guðlast skaðar aldrei Guð sjálfan, og ekkert breytir ástandi hans, en það erum við sjálf, sem við bíðum þá þegar tjón af, ef eða þegar við guðlöstum.
Páll Geir, þetta hugtak er notað um Maríu mey á ítölsku, rétt eins og "vor fru/frú" á dönsku og íslenzku. Vorfrueskirke heitir ein höfuðkirkjan í Kaupmannahöfn, og Cathedre de Notre Dame er fræg höfuðkirkja í París.
Jón Valur Jensson, 15.12.2008 kl. 09:08
Hún er örugglega líka alveg í rusli yfir því að hafa móðgað herra Jón Val.
Einar Steinsson, 15.12.2008 kl. 11:14
Það er auðvitað hreinn viðbjóður að Madonna skuli vera að dingla líkamanum sem fylgdi henni við hingaðkomu.
Djöfuls hræsni hjá þessu liði.
Amen
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.12.2008 kl. 12:35
Ma Donna er ítalska og Kaþólska kirkjan hefur ekki einkarétt á því. Ekki frekar en orðinu guð!
Páll Geir Bjarnason, 15.12.2008 kl. 17:56
Kristin trú hefur bara aldrei höfðað til mín að nokkru leyti og mér er slétt sama hverju þetta lið heldur fram.
Helga Magnúsdóttir, 15.12.2008 kl. 19:46
Valdimar, þú slærð flestum hér við í fáfræði um kaþólsku kirkjuna í Chile já, á valdaárum Pinochets sem og um heimskirkjuna kaþólsku og afstöðu hennar til þrælahalds. Ég ráðlegg þér að lesa sagnfræðibækur, þá sérðu að kirkjan er saklaus af þessum ljótu alhæfingum þínum.
Jón Valur Jensson, 15.12.2008 kl. 20:40
Jón Valur er örugglega með þreifara sem nema og signalera um leið og einhver segir/skrifar/hugsar orð eins og páfi/katólska/dubbelmórall og svoleiðis.
Jón Valur þú ert nú dállítið krútt í viðleitni þinni til varnar kollega þínum á himnum og umboðsmönnum hans á jörðinni.
AMEN
Jenný Anna Baldursdóttir, 15.12.2008 kl. 21:09
Auðvitað er Jóni Vali frjálst að hafa sínar skoðanir á "syndugum" líkama söngkonunnar Maríu Chiccone.
En hvaða syndir skyldu nú hafa verið framdar á líkömum -og sálum- þeirra þúsunda manna, kvenna og barna, sem "týndust" í Chile á valdatíma Pinochets -með blessun Medina kardinála ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 15.12.2008 kl. 21:40
Það er ég (en ekki þið tvær, Jenný og Hildur) sem hef kynnt mér málefni Chile og á meira en eins metra hillupláss af bókum um landið og einkum Allende- og Pinochet-árin. Ég veit vel um hlut kaþólsku kirkjunnar þar að líknarstarfi fyrir fórnarlömb herforingjastjórnarinnar, í Vicaria de la Solidaridad-hjálparstofnuninni o.fl. (sjá t.d. langa grein mína: 'Harðstjórn hersins í Chile', í Tímanum 11. sept. 1976), sem og um gagnrýni kirkjunnar og hennar stofnana á Pinochet-stjórnina. Medina hefur alltaf verið öfgakennda undantekningin. Kardínálinn Raúl de Silva Hernandez (vona að ég fari rétt með nafn hans eftir minni) var formaður kaþólsku biskuparáðstefnunnar í Chile (hann var sem sé primas í Chile, leiðtogi kirkjunnar þar), og hans stefnumörkun var einörð og gagnrýnin á herforingjana, en umhyggjusöm með fórnarlömbum hennar.
Jón Valur Jensson, 15.12.2008 kl. 22:58
Spurðu kommúnista, nazista og öfga-islamista, Sveinn.
Jón Valur Jensson, 15.12.2008 kl. 23:27
Miðað við það sem ég hef séð af skrifum herra Jóns Vals þá held ég að það þurfi ekki getspakan mann til að giska á á hvaða nótum allir metrarnir hans eru þannig að spurningin er hvaða mark á að taka á allri lengdinni (hilluplássi og greinum) sem hann leggur mikla áherslu á, magn er ekki sama og gæði. Hins vegar er ég ekki í nokkrum vafa um að það hefur verið fólk úr öllum áttum og þar með talið bæði trúað fólk og trúlaust sem stóð á móti Pinochets og morðingjum hans.
Kirkjan hefur hins vegar oft haft lag á að starfa með harðstjórum, hér þar sem ég bý (Austurríki) eru enn í gildi lög sem eiga rætur sínar í samstarfi Hitlers og kaþólsku kirkjunnar sem áttu hér ágætt samstarf á sínum tíma þó að kirkjan vilji helst ekki kannast við það í dag. Harðstjórar vita nefnilega að kirkjan hefur aldalanga reynslu í að stjórna fólki og það er betra að gefa henni ákveðin slaka og hafa hana með sér heldur en á móti. Það nýttu bæði Nasistar og Kommúnistar í Sovét sér.
Einar Steinsson, 16.12.2008 kl. 01:02
Þetta eru aumleg skrif hjá þér, Einar. Ritin, sem ég hef aflað mér á áratugum, eru mestmegnis rit sagnfræðinga og samtímafræðinga (varstu ekki að reyna að dylgja, að þau væru öll í kirkjunnar stíl eða á hennar vegum?!).
Seinni málsliður þinn (seinni klausan) er billeg alhæfing og hefur hér ekkert gildi.
Jón Valur Jensson, 16.12.2008 kl. 01:20
Já, já góði minn, allir metrarnir þínir eru örugglega fínustu bækur.
Einar Steinsson, 16.12.2008 kl. 01:35
Takið eftir hversu vel þvegin heilinn á JVJ er... hahahaha
Hvaða maður með réttu ráði fer að verja eitthvað eins og kaþólsku kirkjuna, það er púra klikkun að gera slíkt.
DoctorE (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 09:10
Einar, þér er velkomið að fá að líta á þessar bækur mínar, ef þú þorir og ef þú lofar að bera því síðan vitni hér á þessari vefslóð, hvort það var ég, sem fór með rétt mál þar um, eða þú í þínum ofurtortryggnislegu getsökum. Menn taki svo eftir því, að ég svara því ekki hér, sem í eðli sínu er ekki svaravert.
Jón Valur Jensson, 16.12.2008 kl. 09:32
Sko JVJ talar niður til fólks... þetta lærði hann í biblíunni.
DoctorE (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 10:48
Þakka gott boð en þar sem ég er ekki staddur á landinu og verð það ekki næstu mánuði verður það væntanlega að bíða.
Einar Steinsson, 16.12.2008 kl. 11:08
Leitt að sumir skuli líta á bloggið sem vettvang fyrir ritdeilur og skítkast undir nafnleynd. Vonandi fer að draga úr slíku. Ég er oft ósammála Jóni Val, en hann kemur þó fram undir nafni og rökstyður og það meira að segja á mjög svo fræðilegum nótum. Nokkuð sem allir ættu að taka til fyrirmyndar, hvaða skoðanir sem þeir svo hafa.
Persónulega er ég hlynntur því að sjá sem mesta fjölbreytni í viðhorfum hérna og fólk með ólíkar skoðanir á að geta miðlað hvað öðru af rökum og fróðleik í bróðerni. Það er góð leið til að þroskast og þróast. Tal um að einhver sé heilaþveginn, leiðir aðeins athyglina frá kjarna málanna.
Með vinsemd, virðingu og bestu kveðjum.
Húnbogi Valsson, 16.12.2008 kl. 11:25
Kannski þú ættir að skrifa með alias Húnbogi... ;)
Að segja JVJ vera á fræðilegum grundvelli er eins og að segja að Harry Potter sé til í alvörunni, að Andrés Önd hafi skrifað afstæðiskenninguna.
Sorry Húnbogi en allur þinn malflutningur, þó hann sé skrifaður undir nafni fauk út um gluggann um leið og þú fórst í gamla sveitasíma nafnleysis þvaðrið.
DoctorE (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 11:51
allt gott um það að segja að lesa bækur í metravís, jafnvel kílómetravís mín vegna enda alger bókaormur. Svo er þessi merkilegi hugur okkar sem getur valið og hafnað, það er ekki allt heilagur sannleikur sem stendur í bókum enda allar gerðar af mönnum.
Gagnrýnin hugsun er gott tæki við bókalestur.
Rut Sumarliðadóttir, 17.12.2008 kl. 11:03
DoctorE, er i vondu skapi!
Húnbogi Valsson, 17.12.2008 kl. 18:24
Trúmál og kynlíf eru nú bara argasta "trivia" miðað við það dásamlega spennandi "info overload", sem við sitjum uppi með í dag.
Eruð þið búin að gleyma stýrivöxtunum og skilanenfdunum ? Það eru nú sexí subject fyrir syndugar sálir okkar eyðsluseggjanna !
--------------------------
p.s. Las einu sinni bók. Man ekki hvað hún hét, en hún var margir, margir kílómetrar...
Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.12.2008 kl. 21:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning